|
|
13.06.2007 19:19:49 / hurdur71
Þetta er nú alveg rosalegt, ekkert blogg eftir að familían
flutti til íslands. Mætti ætla að það væri svona mikið að gera, en
það er nú öðru nær, þetta er bara leti og ekkert annað. Sko í Drífu
ekki mér en svona er lífið og lífið er svona sagði kallinn og
hoppaði í sjóinn á eftir álft sem var um það bil að stinga sér í
kaf á eftir tíkalli frá seðlabankastjóranum sem hafði misst hana úr
vasanum. Hvað geta svona kallar verið að spá í hvar þeir missa sína
peninga
lifið heil
»
08.04.2007 09:38:28 / hurdur71
Gleðilega páska allir og öll.
Fjölskyldan er þá loksins flutt í kópavoginn!!. Ronja danska er
mætt til landsins glöð og sæl. Hennar helsta áhyggjuefni þessa
dagana er stefna Frjálslynda flokksins, sem vilja að því sýnist
losna við alla útlendinga, Ronja kýs ekki F. Já til Dikku, skórnir
pössuðu fínt. Nú er sem sagt búið að pússa og olíubera parketið,
spartla í loftin og flytja búslóðina inn. Allir sváfu vel í nótt,
fyrstu nóttina.
Lifið heil.
»
27.03.2007 19:00:42 / hurdur71
Þetta er nú hálflélegt, enginn nennir að blogga lengur. En, ég
er í útlandinu, sálfræðingurinn í vinnu á íslandinu og drengirnir
einnig í sinni vinnu á klakanum. Ég settist að hjá Guðjóni hinum
gula og Dikku hjúkku, því það var svo leiðinlegt í Herning og líka
svo skemmtilegt hjá þeim. En á morgun fer ég aftur til íslandsins
og verð fram yfir páska og afmæli.
Íbúðin er alveg að komast í afhendingu og því verður líklega
málað og spartlað á næstu dögum og svo vonandi flutt og sofið í
nýju íbúðinni í Kópavoginum á allra næstu dögum.
Lokaverkefnið er á áætlun, eða svo vona ég og allt bara
ágætt.
Lifið heil.
Es, Ronja hin eðaldanska er svo væntaleg úr einangrun feit og
fín á fimmtudaginn.
»
07.03.2007 20:49:18 / hurdur71
Erum nú komin til Íslands, útiveru fjölskyldunnar lokið. Nema
hjá Þórði sem brátt snýr aftur til Þórhildar drottningar.
Húsnæði er í sigtinu í kópavogi, drengirnir ánægðir í skólanum
og á æfingum, Sálfræðingurinn er orðinn sálfræðingur og farinn að
vinna sem sálfræðingur. Námsmaðurinn að fara að vinna í maí...
Lifið heil
»
23.02.2007 17:21:24 / hurdur71
Jæja gott
fólk.
Nú get
ég ekki orða bundist.
Hér
hefur bara snjóað og snjóað síðan á miðvikudagskvöld og bara allt
hefur fyllst af snjó. Við héldum náttúrulega bara eins og
venjulegir Íslendingar að lífið myndi halda áfram þrátt fyrir allan
snjóinn en því var nú öðru nær. Hér fór bara allt lífið á hold. Í
fyrsta lagi var öllum skólum á Aarhus svæðinu lokað á fimmtudag
vegna snjóa og á föstudag var ekki gert ráð fyrir kennslu og
foreldrum ráðlagt að hafa börnin heima. En það er nú bara fjör
fyrir krakkana.
En á
fimmtudag hringdi ég í mesta sakleysi í Eimskip sem kemur með
gáminn minn langþráða, og spurði hvort að bíllinn sem gámurinn kæmi
með væri nokkuð voðalega stór þar sem að frekar þröngt væri í
hverfinu sökum snjóa. Þá fékk ég nú þau svör að þeir hefðu nú ekki
keyrt út gáma í tvo daga og þyrfti nú ekki að gera ráð fyrir því að
gámurinn kæmi á morgun, en ég gæti hringt og athugað. Ekki
gott.En svo var hringt á
föstudagsmorgun og sagt að gámurinn kæmi ekki og þar sem þeir keyra
ekki út hér í Danmörku um helgar mætti ég eiga von á gámnum í
fyrsta lagi á mánudag. Frekar súrt. Og nú er gámurinn sem sagt ekki
kominn, en ég fékk hringingu núna áðan frá honum Torben
gámaflutningabílstjóra og hann er með gáminn minn. Hann ætlar að
koma með hann klukkan 6 á mánudagsmorgun og þá er málið
leyst.
Þá bara
skellum við öllu draslinu í gáminn og þrífum svo íbúðina á mettíma
þegar það er búið og allt gengur upp. En sökum snjóa hefur
þvottavélin mín sem ég keypti í Aalborg ekki komist til mín þar sem
við áttum að fá hana á föstudaginn snjóamikla. En þeir sem keyra út
þar hringdu og ætla að koma með vörunar um leið og það verður fært
á milli Aalborg og Aarhus, og það verður vonandi á mánudag.
Auðvitað bjargast þetta allt saman.
En á
meðan við bíðum eftir gámnum höldum við bara áfram að pakka inn
húsgögnum og pakka ofan í kassa. Ekki mikið eftir til að pakka en
nóg að pakka inn.
Hafið
það gott.
Kveðja
úr snjónum
Drífa
»
21.02.2007 17:27:48 / hurdur71
Ég fattaði það það morgun að það er frekar óþægilegt, að sitja í
lest, og heyra að síminn hringir stanslaust inni í klefanum hjá
lestarstjóranum, án þess að hann svari.
Fyrsta sem kom upp í hugann var að oftast mætast lestirnar á stöðum
þar sem tveir teinar eru og því lítil hætta á ferðum, næst
mundi ég eftir nokkrum myndum af lestarslysum og komst að því að
oftast eru fremstu vagnarnir alveg í klessu. Flestir
dauðir eða mikið slaðaðir. En þar sem klukkan var sjö um
morgun og ég frekar þreyttur reyndi ég að hugsa ekki meira um
þetta. Nema síminn bara hringdi látlaust. Eins
gott að ég sat aftast...
Svo fór ég bara í próf, og það gekk bara fínt.
Og þaðan á fund og svo heim.
Annars allt fínt héðan, pökkum fjölgar og fjölgar,
ES, það fjölgar ekki bara pökkum, heldur líka snjókornum á
götum.
Lifið heil.
»
20.02.2007 11:20:59 / hurdur71
Jæja, gott fólk, nú er hellingur kominn í kassa, tölvan fær þó
að vera eitthvað lengur uppi við. Von er á gámnum á föstudaginn og
nú þarf að fara að safna í lið til að bera út í gáminn góða.
Próf á morgun í Research methodology í Herning og svo
fundarhöld fram eftir degi vegna lokaverkefnis. Og svo er ég
tilbúinn í að aðstoða Sála meira.
Strákarnir farnir að verða spenntir yfir því að kveðja vini
sína. Það verður erfitt. Já það verður erfitt fyrir alla að
yfirgefa allt þetta góða fólk hér í Danaveldi. En það góða er að
maður getur alltaf skroppið í heimsókn. Jú og svo lítur út fyrir að
við fáum marga gesti á næstunni.
Lifið heil.
Dagarnir koma og dagarnir fara
dumbir og blindir, án spurninga og svara.
Lítilla sanda og lítilla sæva
líða í kringum mann þúsundir æva.
(Jóhannes úr Kötlum)
»
17.02.2007 17:28:35 / hurdur71
Þessi frétt birtist á mbl.is í morgun.
"Mildi var að rúðan var lárétt þegar hún lenti á höfði
stúlkunnar, þá var húfan með húfu og í góðri úlpu svo hana
sakað ekki."
Spurt er hvar fær maður góða úlpu á húfu?
Lifið heil.
Ótal drauma blíða, bjarta
barstu, vorsól, inn til mín.
Það er engin þörf að kvarta,
þegar blessuð sólin skín.
(Stefán frá Hvítadal)
»
13.02.2007 09:41:29 / hurdur71
Sælt veri
fólkið
Um daginn var
klassefest hjá Kristleifi eins og fram hefur komið á blogginu og
þar var limbókeppni (sem ekki var rætt um á blogginu). En í þessari
limbókeppni voru Kolbeinn og einn annar bekkjarfélagi
Kristleifs voru tveir eftir í lokin, alveg jafngóðir. Og þess vegna
voru kosnir tveir limbókóngar, Kolbeinn og
Alexander.
Þannig að á
þessu heimili búa tveir kóngar, Limbókóngurinn Kolbeinn og
Diskókóngurinn
Kristleifur.
Og svo er Ronja að sjálfsögðu prinsessan á
heimilinu.
Og ég og
Þórður erum
eðalforeldrar.
KvDrífa
»
11.02.2007 09:52:17 / hurdur71
Ekki fékk ég nú mikil viðbrögð við síðustu hugmynd og því er hún
Mæja prinsessa óseld. En sá frábæri leikmaður D. Beckham er víst
seldur til USA, en hann skoraði nú samt fyrir RM í gær. Mikið var
það gott á þennan hrokafulla ítala hr. Capello.
Fyrir helgi hélt sáli tvo afmæli, fyrst fyrir
Kolbeinn tæplega mánuði fyrir tímann (12. mars) og svo
Kristleif helling fyrir tímann (5. apríl). Það var sem sagt fullt
hús af 7-9 ára guttum hér fimmtudag og föstudag. Allt fór
friðsamlega fram og enginn þeirra dó, af ánægju út að eyrum hver
einasta kerling hló.
Lifið heil.
»
06.02.2007 16:35:41 / hurdur71
Nú er ég kominn með rosalega viðskiptahugmynd. Hugmynd sem allir
helstu fjárfestar á Íslandi munu falla fyrir. En eins og allir vita
hafa íslendingar keypt magasín, merlin, sterling, og hin og þessi
fyrirtæki i danmörku, nú svo ekki sé minnst á fótboltaliðin
tvö í englandi, stoke og west ham. Nú er málið að kaupa Mary,
krónprinsessu, sem kostar víst ekki nema 12 milljarða danskra
króna. Kannski svolítið dýr, en að mínu mati mjög fýsilegur
fjárfestingarkostur, þó ekki væri nema vegna þeirra staðreyndar að
hun gæti alið af sér fleiri álíka verdmæta einstaklinga, ( þegar
einn kominn ) á mjög svo hagstæðan hátt. Þannig gæti þessi
fjárfesting á nokkrum árum skilað sér margfalt til baka, fjórir,
fimm eðalbornir einstaklingar ca. 3-4 milljarða hver. Fyrir utan
aðrar tekjur. Skothelt dæmi.
Annars fjölgar kössum nú daglega, Sálfræðingurinn staflar þeim
hugvitsamlega í hvert horn og hvern kima í húsinu.
Allir kátir, ætli það sé snjór á Íslandi?
Hér er allavega daginn mjög farið að lengja, styttist í vorið.
Þá er gaman.
Lifið heil.
»
03.02.2007 15:16:55 / hurdur71
Jæja, þá vorum við að koma heim
frá keppni í fótbolta.
Báðir drengirnir voru að keppa, sem
betur fer á sama stað, Kolbeinn í morgun og svo Kristleifur eftir
hádegi.
Við fórum öll af stað í morgun og
sáum Kolbein keppa sem gerði eitt jafntefli og tapaði einum. Og svo
keyrðum við Þórð í lestina um hádegisbilið því hann þurfti að fara
í skólann. Og svo þurftum við að mæta í höllina aftur klukkan eitt
svo Kristleifur gæti spilað sína leiki. Og viti menn ég rataði að
sjálfsögðu ekki til baka aftur. Ég komst reyndar í bæinn þar sem
keppnin var en ég fann ekki höllina aftur. Strákarnir voru farnir
að tala um svona tæki sem segir manni til vegar sem hægt er að hafa
í bílum og hversu nauðsynlegt það væri fyrir okkur að eiga
svoleiðis, sérstaklega þegar ég væri að keyra. Ég var nú ekki
sammála þessu og vippaði mér útúr bílnum og spurði eina góða konu
til vegar og við komumst á leiðarenda á réttum tíma. Við þurfum sko
ekkert á svona tæki að halda. En Kristleifur spilaði þrjá leiki, og
töpuðu þeir einum og gerðu tvö jafntefli. Voru bara ansi seigir
bræðurnir.
En nú erum við bara að undirbúa
kveðju afmæli fyrir strákana á fimmtudag og föstudag í næstu viku.
Við erum búin að fá kræsingar sendar frá Íslandi til að halda
veislurnar, íslenskt nammi, flatkökur og hangikjöt þannig að þetta
er allt að verða klárt.
En svo er bara að halda áfram að pakka,
og það gengur bara ágætlega.
Bið að heilsa í bili.
Kv
Drífa
»
01.02.2007 18:05:57 / hurdur71
Nú verður ekki skrifað meira um handbolta á þessu bloggi. En
stóru fréttirnar eru auðvitað þær að nú er verðandi sálfræðingurinn
orðinn sálfræðingur. Til lukku með það Drífa frá okkur
strákunum.
Annars er allt fínt, kössunum fjölgar dag frá degi og brátt
verður allt kössum. Eða innpakkað tilbúið til flutnings. Á meðan er
rembist ég við að hnoða saman eins og einni ritgerð.
Fínt að sitja í lestinni 3 tíma á dag og lesa.
Góð þessi græna lest.
»
30.01.2007 21:51:54 / hurdur71
Jæja, ekki gekk óskin eftir, en hvað er hægt að segja eftir
svona leik. Eitt er víst, strákarnir stóðu sig rosalega vel. Ég er
stoltur af þeim. Eiginlega tapaði enginn í þessum leik. En jú danir
unnu. Heppnin var með þeim
Lifið heil.
»
29.01.2007 17:39:24 / hurdur71
Það fór auðvitað þannig að um leið og við keyptum
snjóþotu fyrir strákana þá ruddist helv.. rigning inn í
veisluna. Ekki nóg með að snjórinn yrði hundfúll yfir þessum
yfirgangi heldur fór hann í fússi og hefur ekkert til hans
spurst.
Á morgun er svo stóra
stundin;
Áralöng þjálfun og reynsla, ásamt
metnaði, dugnaði og þrautseigju, ferðalögum, flutningum verður lögð
á vogarskálarnar. Verður allt þetta metið að verðleikum og mun allt
þetta duga?
Já ég á nú von á því, enda var þetta
ágæt ritgerð hjá stelpunni og einkunnin örugglega vel
viðunandi.
Á morgun er svo stóra
stundin;
Áralöng þjálfun og reynsla, ásamt
metnaði, dugnaði og þrautsegju, ferðalögum, flutningum verður lögð
á vogarskálarnar. Verður allt þetta metið að verðleikum og mun allt
þetta duga?
Já ég á nú von á því, enda munu
strákarnir eiga sinn besta leik og vinna danina sem eru að springa
úr spenning yfir því að geta mætt Rússum eða Pólverjum.
En vissulega munu þeir dönsku mæta
Rússum eða Pólverjum en það verður bara í keppni um sæti fimm til
átta.
Lifið heil.
»
Síður: 1 2 3 ... 12
|
|